Fara í efni

Ársreikningur Kjósarhrepps 2025 og síðasti fundur sveitarstjórnar

Deila frétt:

Ársreikningur Kjósarhrepps fyrir árið 2025 var lagður fram við síðari umræðu til staðfestingar á fundi sveitarstjórnar Kjósarhrepps þann 6. maí sl. Fyrri umræða fór fram 8. apríl 2026.

Samstæðureikningur samanstendur af A- og B-hluta. Í A-hluta eru aðalsjóður og eignasjóður. Um er að ræða rekstrareiningar sem fjármagnaðar eru að hluta eða öllu leyti með skatttekjum.

Í B-hluta eru Kjósarveitur og Leiðarljós. Um er að ræða rekstrareiningar sem reknar eru sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar og hafa lagaheimild til að innheimta þjónustugjöld.

Helstu niðurstöður: Rekstrarniðurstaða samstæðu sveitarfélagsins (A- og B-hluti) var jákvæð um 141,3 millj. kr. samanborið við 103,8 millj. kr. rekstrarafgang árið 2024.  A-hluti var rekinn með 132,7 millj. kr. rekstrarafgangi, samanborið við 101,8 millj. kr. rekstrarafgang árið 2024.

Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir afskriftir nam 123,7 millj. kr.  Fjármagnsgjöld nema 20,7 millj. kr. nettó og lækka um 5 millj. kr. á milli ára. Afskriftir nema 21,8 millj. kr.

Útsvar nam 269,8 millj. kr. og fasteignaskattur nam 97,2 millj. kr.  Samtals nema því útsvar og fasteignaskattar 367,1 millj. kr., framlög Jöfnunarsjóðs námu 51,5 millj. kr. og aðrar tekjur voru 90,5 millj. kr.  Að teknu tilliti til millifærslna nema heildartekjur 509,2 millj. kr.

Fræðslu- og uppeldismál eru sem fyrr umfangsmesti málaflokkurinn í rekstri sveitarfélagsins. Börnum hefur fjölgað í sveitarfélaginu sem er af hinu góða. Málaflokkurinn tók til sín 100,4 millj. kr. árið 2024 en árið 2025 hækkaði hann í 136,3 millj. kr.

Vel hefur gengið að ná tökum á kostnaði vegna úrgangsmála. Eftir að hafa þurft að fara í verulegar hækkanir á sorpgjöldum árið 2024 í kjölfar innleiðingar á nýjum lögum um úrgangsmál, þá var ekki um neinar hækkanir að ræða árið 2025 ólíkt flestum öðrum sveitarfélögum og árið 2026 gátum við í ljósi góðrar rekstrarafkomu á málaflokknum lækkað sorpgjöldin verulega á grenndarstöðvar en minna á aðrar einingar.

Fjárfestingar námu 148,8 millj. kr.,  er það að mestu leyti vegna borunar á nýrri heitavatnsholu á vegum Kjósarveitna.

Skuldahlutfall samstæðunnar lækkar úr 41% árið 2024 í 25%. Gert er ráð fyrir að A hluti verði skuldlaus um mitt ár 2027. Sjá nánar um ársreikninga Kjósarhrepps

Þessi síðasti fundur sveitarstjórnar var jafnframt síðasti fundur Guðmundar Davíðssonar og Þórarins Jónssonar í bili.  Guðmundur Davíðsson hefur setið í sveitarstjórn Kjósarhrepps sem aðal- eða varamaður frá árinu 1998 og Þórarinn Jónsson hefur setið sem aðalmaður frá árinu 2010. Þeir hafa nú ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram. Af því tilefni kvaddi oddviti sér hljóðs og þakkaði þeim fyrir framlag þeirra til stjórnsýslu Kjósarhrepps og óskaði þeim velfarnaðar til framtíðar.