Átta áratugir í þjónustu samfélagsins, Félagsgarður í Kjós 80 ára
Í dag, 23. júní 2026, eru liðin 80 ár frá því að Félagsgarður í Kjós var vígður á Jónsmessu árið 1946. Með því rættist langþráður draumur Kjósverja um eigin samkomustað og varð til hús sem hefur síðan verið hjarta mannlífs í sveitinni.
Ungmennafélagið Drengur, sem stofnað var árið 1915, hafði frá fyrstu tíð haft það að markmiði að reisa eigið samkomuhús. Eftir þrjátíu ára starf víðs vegar um sveitina var ákveðið á fundi 18. júní 1945 að hefja byggingu hússins og aðeins tveimur dögum síðar hófst verkið. Fyrir lá teikning Karls Andréssonar á Neðra-Hálsi og rausnarleg gjöf landeigenda í Laxárnesi, sem gáfu félaginu lóð undir samkomuhús og íþróttavöll.
Byggingin var mikið samvinnuverkefni. Byggingarefni var meðal annars fengið úr samkomubragga í Hvítanesi eftir að hernámi lauk og fjölmargir Kjósverjar tóku þátt í að rífa braggana og flytja efnið á byggingarstað. Yfirsmiður var Brynjólfur Guðmundsson frá Miðdal og vinnuskýrslur sýna að alls komu 76 karlar og 17 konur að verkinu, auk fjölda sjálfboðaliða. Á rétt rúmu ári reis húsið, fyrsta samkomuhús á Íslandi sem reist var af ungmennafélagi.
Nafnið Félagsgarður var valið á félagsfundi vorið 1946 og húsið vígt við hátíðlega athöfn á Jónsmessunni 23. júní sama ár. Frágangi innandyra var þó ekki lokið og næstu árin var unnið að múrun, málun, raflögnum og upphitun, þrátt fyrir miklar skuldir sem hvíldu á félaginu. Með stuðningi úr Félagsheimilasjóði, góðum gjöfum og fórnfýsi heimamanna tókst að ljúka þeim framkvæmdum.
Í átta áratugi hefur Félagsgarður verið vettvangur nær alls félagslífs í Kjósinni. Þar hafa kynslóðir Kjósverja komið saman til funda, þorrablóta, árshátíða, brúðkaupa, ferminga og annarra mannfagnaða. Húsið hefur staðið af sér miklar samfélagsbreytingar en hlutverk þess hefur ávallt verið hið sama – að vera samkomustaður fólksins í sveitinni.
Saga Félagsgarðs er saga samstöðu, sjálfboðavinnu og samfélagsanda. Á þessum tímamótum er ástæða til að minnast þeirra sem lögðu grunninn að þessu merka húsi og allra þeirra sem hafa í gegnum árin haldið því við og fyllt það lífi.
Megi Félagsgarður í Kjós áfram vera vettvangur menningar, mannfagnaðar og samfélags um ókomin ár.
Afmælinu verður fagnað í haust með veglegu kaffisamsæti í húsinu, það verður nánar auglýst síðar.