Fara í efni

Breytingar á stjórnendum Kjósarhrepps og skipan í nefndir á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar

Deila frétt:

Á fyrsta fundi sveitarstjórnar Kjósarhrepps á þessu kjörtímabili, sem haldinn var 3. júní síðastliðinn, voru teknar mikilvægar ákvarðanir um stjórnsýslu sveitarfélagsins og skipan í nefndir, ráð og stjórnir.

Þorbjörg Gísladóttir sveitarstjóri hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa sem sveitarstjóri Kjósarhrepps. Sveitarstjórn þakkar Þorbjörgu fyrir farsælt samstarf og mikilvægt framlag hennar til reksturs og þróunar sveitarfélagsins á undanförnum árum.

Sveitarstjórn samþykkti á fundinum að ráða Jóhönnu Hreinsdóttur, oddvita sveitarstjórnar, í starf framkvæmdastjóra. Jóhanna þekkir vel til stjórnsýslu sveitarfélagsins og brennur fyrir velferð þess. Hún mun taka við starfinu þann 1. ágúst næstkomandi og leiða daglegan rekstur sveitarfélagsins ásamt því að sinna oddvitastörfum.

Til að tryggja hnökralaus umskipti og varðveislu þekkingar innan stjórnsýslunnar hefur verið ákveðið að Jóhanna gegni starfinu í fullu starfi fram að áramótum. Frá og með áramótum mun hún sinna framkvæmdarstjóra starfinu í hálfu starfshlutfalli, en á sama tíma mun Þorbjörg Gísladóttir taka við hlutverki verkefnastjóra í hálfu starfshlutfalli. Með þessu fyrirkomulagi skapast góðar forsendur fyrir samfellu í verkefnum sveitarfélagsins og áframhaldandi öflugri þjónustu við íbúa.

Á skrifstofu Kjósarhrepps starfa nú fjórir starfsmenn í fjórum stöðugildum en stöðugildum fjölgar ekki við þessa breytingu. Eitt stöðugildi er framkvæmdastjóri Kjósarveitna og Leiðarljóss, Axel Jóhannsson. Berglind Hansdóttir gegnir starfi aðalbókara sveitarfélagsins og ber ábyrgð á fjárhags- og bókhaldsmálum, Olgeir Olgeirsson er verkefnastjóri skipulags- og byggingarsviðs og sinnir fjölbreyttum verkefnum á því sviði.

Á fundinum fór einnig fram skipan í stjórnir, nefndir, ráð og aðra samstarfsvettvanga á vegum Kjósarhrepps. Með þeirri skipan er lagður grunnur að starfi sveitarstjórnarinnar á komandi kjörtímabili og áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins í nánu samstarfi við íbúa og hagsmunaaðila.

Eftirfarandi skipanir voru gerðar:

Skipan fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- Gerð er tillaga um að sveitarstjóri verði aðalfulltrúi og Sigurþór I. Sigurðsson, varafulltrúi.

Skipan fulltrúa í Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins.
-Gerð er tillaga um að sveitarstjóri og varaoddviti verði aðalfulltrúar og varafulltrúar verði Þóra Jónsdóttir og Jón Þorgeir Sigurðsson.

Skipan fulltrúa í Notendaráð Kjósarhrepps og Mosfellsbæjar um málefni fatlaðs fólks.
-Gerð er tillaga um að Þóra Jónsdóttir verði aðalfulltrúi f.h. Kjósarhrepps og Benedikta Birgisdóttir verði aðalfulltrúi f.h. notenda, Díana Þorsteinsdóttir verði varafulltrúi Kjósarhrepps og Sigurþór I. Sigurðsson verði varafulltrúi notenda.

Skipan fulltrúa í stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
-Gerð er tillaga um að aðalfulltrúi verði sveitarstjóri og varafulltrúi varaoddviti.

Skipan fulltrúa í Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins.
- Gerð er tillaga um að Elís Guðmundsson og Magnús Kristmannsson verði aðalfulltrúar og Petra Marteinsdóttir og Brynja Laxdal verði varafulltrúar.

Skipan fulltrúa í Skipulags- umhverfis- og samgöngunefnd Kjósarhrepps.
- Gerð er tillaga um að eftirfarandi aðal- og varafulltrúar verði skipaðir:

Aðalfulltrúar
Elís Guðmundsson, Hlíðarási
Magnús Kristmannsson, Stekkjarhóli
Petra Marteinsdóttir, Blönduholti
Guðmundur Davíðsson, Melbæ
Brynja Laxdal, Nesvegi

Varafulltrúar
Ernst Verwijnen, Láglendi
Guðbjörg Jóhannesdóttir, Dælisárvegi
Gunnar Leó Helgason, Holti
Arngrímur Arngrímsson, Snorravík
Þórarinn Þorvar Orrason, Standgili