Fara í efni

Breytingar á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentu

Deila frétt:

Breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentum sveitarfélaga um áramótin í kjölfar þriðja samkomulags ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Í samkomulaginu felst varanleg tilfærsla fjármuna sem nema 5 ma.kr. árlega frá ríki til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að ná settum afkomu- og skuldamarkmiðum í gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2023-2027. Aðgerðin felur í sér að hámarksútsvar verður hækkað og tekjuskattur einstaklinga lækkaður jafn mikið samhliða og er því hlutlaus fyrir skattgreiðendur að því gefnu að sveitarfélög nýti sér hina auknu heimild til að hækka útsvar.

Lög nr. 90/2003 um tekjuskatt einstaklinga breytast á þann veg að öll þrep tekjuskatts lækka um 0,22 prósentustig og lög nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg að heimild til álagningar útsvars hækkar um 0,22 prósentustig og verður því 14,74% eftir breytinguna.

Til viðbótar fyrrgreindum breytingum skal samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt í upphafi hvers árs hækka persónuafslátt og þrepamörk tekjuskatts einstaklinga sem nemur hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði að viðbættri hækkun vegna aukinnar framleiðni. Miðað er við 1% árlega aukningu framleiðni og er það mat tekið til endurskoðunar á 5 ára fresti, næst fyrir áramótin 2027-2028. Hækkun vísitölu neysluverðs liggur nú fyrir og nemur hún 9,6% á 12 mánaða tímabili. Heildarhækkun persónuafsláttar og þrepamarka verður því 10,7%.