Fara í efni

Breytingar á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentu

Deila frétt:

Breytingar verða á tekjuskatti einstaklinga og útsvarsprósentum sveitarfélaga um áramótin í kjölfar fjórða samkomulags ríkis og sveitarfélaga um breytingu á fjármögnun lögbundinnar þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Í samkomulaginu felst varanleg tilfærsla fjármuna  árlega frá ríki til sveitarfélaga í því skyni að gera þeim kleift að ná settum afkomu- og skuldamarkmiðum í gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028. Aðgerðin felur í sér að hámarksútsvar verður hækkað og tekjuskattur einstaklinga lækkaður jafn mikið samhliða og er því hlutlaus fyrir skattgreiðendur að því gefnu að sveitarfélög nýti sér hina auknu heimild til að hækka útsvar. Þetta er samskonar tilfærsla og var gerð fyrir áramót í fyrra.

Lög nr. 90/2003 um tekjuskatt einstaklinga breytast á þann veg að öll þrep tekjuskatts lækka um 0,23 prósentustig og lög nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg að heimild til álagningar útsvars hækkar um 0,23 prósentustig og verður því 14,97% eftir breytinguna. 'utsvar í Kjósarhreppi verður eftir breytinguna 14.45 og er ennþá eitt lægsta útsvar landsins.

Með þessum aðgerðum er skattbyrði hvers einstaklings ekki að þyngjast heldur færist hluti þess skatts sem ríkið fékk áður til sveitarfélaga.