Fara í efni

Byggðafesta og búferlaflutningar: Sveitir og strjálbýli á Íslandi

Deila frétt:

Byggðastofnun leitar til íbúa í strjálbýlli hlutum Íslands um þátttöku í könnuninni Byggðafesta og búferlaflutningar: Sveitir og strjálbýli á Íslandi.
Í könnuninni er safnað saman margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum sveitasamfélaga og strjálbýlis og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum.

Könnunin er ætluð öllum íbúum 18 ára og eldri í sveitum eða öðru strjálbýli á Íslandi. Með því er átt við íbúa á sveitabæjum og íbúðarhúsum utan þéttbýliskjarna, óháð því hvort búskapur er stundaður þar. Könnunin nær EKKI til íbúa í þorpum eða litlum byggðakjörnum á strjálbýlum svæðum. Könnunin er hluti rannsóknarverkefnis á vegum Byggðastofnunar í samstarfi við rannsóknafólk við innlenda og erlenda háskóla. Aðrar kannanir munu ná til íbúa í stórum og litlum þéttbýliskjörnum.

Könnuninni er ætlað að safna margvíslegum upplýsingum sem aukið geta skilning á málefnum sveitasamfélaga og strjálbýlis og stutt við stefnumótun og aðgerðir í byggðamálum. Jafnframt verða gögnin notuð til rannsókna sem birtast munu á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.

Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri stýrir rannsókninni og svarar spurningum í síma 661 6099 eða í tölvupósti (thoroddur@unak.is).

Þátttaka í könnuninni er að sjálfsögðu frjáls og svarendum ber hvorki skylda til að svara einstökum spurningum eða könnuninni í heild. Könnunin er unnin í samræmi við lög 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sjá nánar hér.

Nánari upplýsingar um rannsóknina á heimasíðu Byggðastofnunar.

Til að taka þátt í könnuninni þarf að fara inn á www.byggdir.is og www.byggdir.is/english.