Fara í efni

Dómur fallinn í máli vélsmala

Deila frétt:

 

Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi norðurlands eystra 8. október.

Eftirfarandi texta mátti m.a.finna í dómnum sem er birtur hér til gamans.

Erlingur Sigtryggsson héraðsdómslögmaður hvað upp dóminn

 

“Meðan ekki verður öðruvísi kveðið á um, lítur dómari svo á að smala­mennska falli undir störf við landbúnað. Hann telur einnig augljóst að unnt sé að smala fé af fótgangandi mönnum eingöngu, en einnig að það sé algerlega fráleitt verklag, séu aðstæður til að beita einhverjum fararskjótum til þess á annað borð, lifandi eða dauðum, með lögmætum hætti. Aug­ljós­lega væri unnt að nota hina lifandi eingöngu, þ.e. hesta. Notkun þeirra er alls ekki hættulaus, jafnvel vönum mönnum, og ekki er borðleggjandi að engin náttúru­spjöll leiði af traðki þeirra, sbr. til hliðsjónar skyldu reiðmanna til að fylgja skipulögðum reiðstígum eins og kostur er, samkvæmt 1. mgr. 16. gr. laga nr. 44/1999. Þá er við margvíslegar aðstæður miklum mun hentugra að smala fé á vélknúnum fararskjótum, sem fram yfir hina lifandi hafa bæði hraða og úthald, auk þess sem kenjar og hrekkir hinna vélknúnu eru miklum mun útreiknanlegri og viðráðanlegri en hinna lifandi.”