Fara í efni

Ellefu umsækjendur um embætti sóknarprests á Reynivöllum

Deila frétt:

 

Ellefu umsækjendur eru um embætti sóknarprests í Reynivallaprestakalli Kjalarnessprófastsdæmi.

Embættið veitist frá 1. mars nk.

 

Umsækjendurnir eru; mag. theol. Anna Þóra Paulsdóttir, séra Arna Grétarsdóttir, dr. Grétar Halldór Gunnarsson, dr. Haukur Ingi Jónasson, cand. theol. Kristinn Snævar Jónsson, séra Kristín Pálsdóttir, mag. theol. María Rut Baldursdóttir, séra Stefán Már Gunnlaugsson, séra Úrsúla  Árnadóttir, mag. theol. Viðar Stefánsson, séra Þórhallur Heimisson.

 

Frestur til að sækja um embættið rann út 9. febrúar sl.

Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar.

Valnefnd skipa níu manns, þrír úr Reynivallasókn og sex úr Brautarholtssókn auk prófasts.

Ljóst er að mikið verk bíður valnefndar að velja úr jafn hæfum hópi umsækjenda.