Endurreisnarfundur Skógræktarfélags Kjósarhrepps fimmtudaginn 22. október kl. 20.00 í Ásgarði.
13.10.2026
Deila frétt:
Endurreisnarfundur verður haldinn í Skógræktarfélagi Kjósarhrepps að Ásgarði fimmtudaginn 22. október kl. 20.00.
Farið verður yfir eignir félagsins, markmið þess og tilgang auk þess að kjósa félaginu nýja stjórn. Lögð verður fram tillaga að nýjum lögum fyrir félagið.
Á fundinn mæta Brynjólfur Jónsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands og Ragnhildur Freysteinsdóttir, sem mun fjalla um útivistarskóga, starf Skógræktarfélags Íslands og Yrkjusjóðinn.
Nánari upplýsingar gefur Kristján í síma 894 95 67