Fara í efni

Endurskoðun Aðalskipulags Kjósarhrepps 2023-2043 skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deila frétt:

Tillagan felur í sér endurskoðun á Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2024-2036 og er sett fram á uppdrætti, í greinargerðum. Um er að ræða heildarendurskoðun aðalskipulags. Tilgangurinn með endurskoðun aðalskipulagsins er að laga skipulagið að breyttum forsendum, lögum, reglugerðum, áætlunum og stefnumörkun stjórnvalda svo hægt verði að takast á við þær áskoranir sem fyrir liggja. Við endurskoðunina verður mótuð stefna um landnotkun, náttúruvernd og þróun byggðar í sveitarfélaginu öllu.

Tillagan liggur frammi á skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði, frá og með 10. mars 2026 til 21. apríl 2026 og er einnig til sýnis á heimasíðu Kjósarhrepps, sem og í skipulagsgátt undir málsnúmeri 917/2024.  Skipulagsuppdráttur , Greinargerð.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til 21. apríl 2024.

Skila skal athugasemdum í skipulagsgátt undir viðkomandi málsnúmeri.

Virðingarfyllst,

Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps