Vinnuskóli í Kjósarhreppi sumarið 2025
Kjósarhreppur og Reykjavíkurborg að bjóða börnum á Kjalarnesi og í Kjósinni að vinna saman í sumar. Vinnustöðvar verða þá ýmist i Kjósinni eða á Kjalarnesi. Það er von okkar að með þessu fyrirkomulagi verði skólinn skemmtilegri og fjölbreyttari.
Börnum sem fædd eru 2009 til 2011 stendur þessi vinna til boða. Börnum sem fædd eru 2011 stendur til boða að vinna frá 10. júní til hádegis 20. júní (7,5 daga) og börnum fæddum 2009 og 2010 stendur til boða að vinna frá 10. júní til og með 1. júlí (15 daga). Unnið er alla virka daga á tímabilinu, ekki er unnið á lögbundnum frídögum.
Boðið verður uppá akstur þegar unnið er á Kjalarnesi ef næg þátttaka fæst, börnin verða þá sótt og skilað heim eftir vinnu eins og um skólaakstur sé að ræða.
- Nemendur starfa í 6,5 klst. á dag.
- Daglegur vinnutími er kl. 8:45–15:30.
Skráning er hjá sveitarstjóra í sveitarstjori@kjos.is við skráningu þarf að koma fram nafn, barnsins og kennitala ásamt bankaupplýsingum og hvort viðkomandi ætli að nota akstur til og frá Kjalarnesi. Einnig þurfa að koma fram upplýsingar um forráðamann ásamt síma og netfangi.
Sjá nánar um vinnuskólann, laun og fleira á https://www.kjos.is/is/thjonusta/felags-og-velferdamal/born-og-unglingar/vinnuskoli-unglingavinna