Vinnuskóli 2026
Kjósarhreppur og Reykjavíkurborg að bjóða börnum á Kjalarnesi og í Kjósinni að vinna saman í sumar, eins og undanfarin sumur. Vinnustöðvar verða þá ýmist i Kjósinni eða á Kjalarnesi. Það er von okkar að með þessu fyrirkomulagi verði skólinn skemmtilegri og fjölbreyttari.
Börnum sem fædd eru 2010 til 2012 stendur þessi vinna til boða. Börnum sem fædd eru 2012 stendur til boða að vinna frá 11. júní til hádegis 23. júní (7,5 daga) og börnum fæddum 2010 og 2011 stendur til boða að vinna frá 11. júní til og með 2. júlí (15 daga). Unnið er alla virka daga á tímabilinu, ekki er unnið á lögbundnum frídögum.
Boðið verður uppá akstur þegar unnið er á Kjalarnesi ef næg þátttaka fæst, börnin verða þá sótt og skilað heim eftir vinnu eins og um skólaakstur sé að ræða.
- Nemendur starfa í 6,5 klst. á dag.
- Daglegur vinnutími er kl. 8:45–15:30.
Skráning er hjá sveitarstjóra í sveitarstjori@kjos.is við skráningu þarf að koma fram nafn, barnsins og kennitala ásamt bankaupplýsingum og hvort viðkomandi ætli að nota akstur til og frá Kjalarnesi. Einnig þurfa að koma fram upplýsingar um forráðamann ásamt síma og netfangi.
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2026
Sjá nánar um vinnuskólann, laun og fleira á https://www.kjos.is/is/thjonusta/felags-og-velferdamal/born-og-unglingar/vinnuskoli-unglingavinna