Auglýsing um kjörskrá og utankjörfundaratkvæðagreiðslu
10.08.2026
Deila frétt:
Kjörskrá Kjósarhrepps vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29. ágúst næstkomandi hefur verið lögð fram, almenningi til sýnis á skrifstofu Kjósarhrepps í Ásgarði.
Skrifstofan er opin á mán. - fim. kl. 10:00 - 15:00
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá sýslumönnum, sendiráðum og ræðismönnum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 2026 og hófst mánudaginn 27. júlí 2026.
Tekið er á móti utankjörfundaratkvæðum á skrifstofu Kjósarhrepps á opnunartíma.
Kjörfundur í Kjósarhreppi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður í Ásgarði laugardaginn 29. ágúst 2026 og hefst kl. 12:00 og lýkur kl. 20:00.
Allar frekari upplýsingar má finna á vefnum Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 | Upplýsingavefur landskjörstjórnar