Fara í efni

Kjósarhreppur vill fullt umhverfismat vegna hænsnabús á Tindstöðum í Miðdal

Deila frétt:

Kjósarhreppur hefur skilað inn umsögn vegna fyrirhugaðs umfangsmikils hænsnabús Matfugls ehf. á Tindstöðum í Eilífsdal og fer fram á að framkvæmdin verði háð fullu mati á umhverfisáhrifum.

Í umsögn hreppsins er bent á möguleg áhrif framkvæmdarinnar á umhverfi og nærliggjandi byggð. Þar er meðal annars fjallað um lykt, hávaða, ásýnd, umferð og þungaflutninga, vatnsnotkun, frárennsli og meðhöndlun húsdýraáburðar.

Gert er ráð fyrir allt að 39.900 stofnfuglum við fulla uppbyggingu og að árlega geti fallið til um 520–560 tonn af húsdýraáburði.

Kjósarhreppur telur að afla þurfi ítarlegri gagna um áhrif framkvæmdarinnar áður en ákvörðun verður tekin um matsskyldu. Jafnframt kemur fram að afstaða sveitarfélagsins sé óbreytt frá fyrri umsögn frá árinu 2024, þegar hreppurinn lagðist gegn áformunum.

Hér má lesa umsögn Kjósarhrepps í heild.