Tímabundnar tafir á umferð við Hvammsvík 22. september og 2 . október.
21.09.2026
Deila frétt:
Vegna kvikmyndatöku á vegum True North við Hvammsvík verða tímabundnar tafir á umferð 22. september og 2. október.
Upptökur fara fram á og við veginn og gert er ráð fyrir að umferð verði stöðvuð í allt að 10 mínútur í senn, með leyfi Vegagerðarinnar.
Viðvörunarskilti verða sett upp við veginn degi áður en upptökur hefjast.
Starfsmannabílar vegna verkefnisins verða staðsettir við Fossá skógrækt og Fossá réttir.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi og gera ráð fyrir mögulegum skammvinnum töfum á meðan á tökum stendur.
Við þökkum vegfarendum fyrir skilning og þolinmæði.