Skipulagsauglýsing
Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Kjósarhrepps – deiliskipulag frístundabyggðar við Sandslund 16, Sandstanga og Sandslund 2
Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. september 2026, með breytingum, deiliskipulag frístundabyggðar við Sandslund 16, Sandstanga og Sandslund 26.
Deiliskipulagið tekur til um 5 ha svæðis og gerir ráð fyrir 14 frístundalóðum. Í skipulaginu er kveðið á um byggingarreiti, byggingarheimildir, aðkomu og veitur. Aðkoma að svæðinu er frá Flekkudalsvegi um Sandstanga og Sóltún.
Tillagan hlaut málsmeðferð samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var endurauglýst með athugasemdafresti til 20. ágúst 2026.
Skipulagsgögn og afgreiðsla sveitarstjórnar eru aðgengileg í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 2025/1619.
Deiliskipulagið tekur gildi við birtingu auglýsingar um samþykkt þess í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni lögbundinni málsmeðferð.
Deiliskipulagsuppdrátt má skoða hér
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps