Fara í efni

Kjósarhreppur byggir nýtt þjónustuhús á Möðruvöllum

Deila frétt:

Áætlað er að framkvæmdir við nýtt 288 fermetra þjónustuhús á Möðruvöllum hefjist í þessari viku. Ákvörðun um byggingu hússins var tekin við gerð síðustu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins og hefur undirbúningur staðið yfir undanfarna mánuði.

Húsið verður reist við hlið hitaveituhússins á Möðruvöllum og mun þjóna bæði sem áhaldahús Kjósarhrepps og aðstaða fyrir starfsemi Kjósarveitna.

Í þjónustuhúsinu verður rými fyrir áhöld, tæki og annan búnað fyrir bæði sveitarfélagið og Kjósarveitur. Jafnframt verður komið upp tengigryfju fyrir hitaveituna, sem mun bæta aðstöðu til viðhalds og reksturs hitaveitukerfisins. Þörfin fyrir slíka aðstöðu hefur verið brýn og er framkvæmdin því mikilvægur liður í að styrkja innviði veitunnar.

Bygging þjónustuhússins er liður í áframhaldandi uppbyggingu innviða í Kjósarhreppi. Með framkvæmdinni verður aðstaða bæði sveitarfélagsins og Kjósarveitna bætt, um leið og skapaðar verða betri forsendur fyrir skilvirkum rekstri og góðri þjónustu við íbúa til framtíðar.

Nýja þjónustuhúsið verður því mikilvæg viðbót við starfsaðstöðu sveitarfélagsins á Möðruvöllum og mun styðja við áframhaldandi þróun og vöxt sveitarfélagsins.

Á myndinni má sjá sveitarstjórn Kjósarhrepps taka fyrstu skóflustunguna að húsinu.