Fara í efni

Kjósarhreppur hvetur til betri umgengni á grenndarstöðvum

Deila frétt:

Slæm umgengni hefur verið á sumum grenndarstöðvum Kjósarhrepps undanfarna mánuði. Rusl hefur ítrekað verið skilið eftir fyrir utan gáma og sorp sett á staði þar sem það á ekki heima.

Kjósarhreppur hefur þurft að senda starfsmann margar ferðir til að hreinsa til og flytja sorp á gámaplanið. Þetta eykur rekstrarkostnað sem að lokum lendir á eigendum fasteigna í formi hærri sorpgjalda.

Forsenda þess að hægt sé að halda úti grenndarstöðvum er að þær séu rétt nýttar og vel um þær gengið.

Kjósarhreppur hvetur alla til að ganga vel um grenndarstöðvarnar og setja aðeins þann úrgang í gáma sem þar á heima, okkur öllum til hagsbóta.