Fara í efni

Sandslundur 17 – grenndarkynning á óverulegri breytingu á deiliskipulagi

Deila frétt:

Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 10. nóvember 2026 að grenndarkynna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Sandslundi 17 (L215924), samkvæmt 2. mgr. 43. gr., sbr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Breytingin felst í að afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að það nær eingöngu til þeirra sex frístundalóða sem í gildandi deiliskipulagi heita Sandslundur 17a–17f. Lóðirnar fá heitin Sóltún 7, 9, 11, 13, 15 og 17 og verður aðkoma að þeim frá Sóltúni.

Markmið breytingarinnar er að samræma afmörkun aðliggjandi deiliskipulagssvæða og koma í veg fyrir skörun þeirra. Breytingin felur ekki í sér breytingar á landnotkun, byggingarheimildum eða nýtingarhlutfalli lóða. Að öðru leyti gilda áfram skilmálar gildandi deiliskipulags.

Tillagan er aðgengileg á heimasíðu Kjósarhrepps og í Skipulagsgátt frá 11. Nóvember 2026 til 9. Desember 2026..

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila í gegnum Skipulagsgátt undir málsnúmeri 1293/2026 eigi síðar en 9. desember 2026.

Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps