Ertu mannblendinn bókaormur ?
Kjósarhreppur auglýsir eftir starfsmanni til að sjá um bókasafn sveitarfélagsins, veturinn 2015-2016.
Bókasafnið er staðsett í Ásgarði og í tengslum við það eru haldin fræðslukvöld um allt milli himins og jarðar.
Viðkomandi kemur til með að vinna í nánu samstarfi við menningarmálanefnd hreppsins, sem hefur umsjón með safninu, starfsháttum ásamt rekstri.
Markmiðið er að hafa safnið opið hálfsmánaðarlega í allan vetur.
Umsæjandi þarf að vera þjónustulundaður, hafa gaman af bókum og vera sérstaklega hugmyndaríkur varðandi efni fyrir börn og unglinga, því nýlega undirritaði Kjósarhreppur Þjóðarsáttmála um læsi. Þar sem mennta- og menningarmálaráðuneytið, sveitarfélög og skólar skuldbinda sig að vinna að því með öllum tiltækum ráðum að ná settu markmiði um læsi. Markmiðið er að öll börn sem hafa til þess getu, lesi sér til gagns við útskrift úr grunnskóla.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Guðný G. Ívarsdóttir, sveitarstjóri: gudny@kjos.is og
Sigríður Klara Árnadóttir, starfsmaður menningarmálanefndar: sigridur@kjos.is
Síminn á skrifstofu hreppsins er: 566-7100
Umsóknir má senda hvort sem er í tölvupósti til ofangreindra aðila eða á skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði í Kjós, 276 Mosfellsbær.
Umsóknarfrestur er til og með 18. september 2015
![]() |
![]() |
|

