Ferðastyrkir til famhaldsskólanema
Kjósarhreppur veitir ferðastyrki til framhaldsskólanema sem sækja nám utan sveitarfélagsins. Markmið styrkjanna er að jafna aðstöðumun framhaldsskólanema gagnvart öðrum nemendum sem ekki þurfa að fara um langan veg til að stunda sitt nám. Rétt til framlags eiga þeir framhaldsskólanemar sem eiga lögheimili og hafa fasta búsetu í Kjósarhreppi og stunda reglubundið framhaldsskólanám hér á landi. Hámarksaðstoðartími er fjögur ár eða 8 annir. Umsókn skal skila á rafrænu umsóknareyðublaði sem má finna á kjos.is, undir Mínar síður, ásamt vottorði frá viðkomandi skólayfirvöldum þar sem fram kemur að umsækjandi hafi stundað reglubundið nám á viðkomandi önn. Styrkir eru greiddir út tvisvar á ári eða í lok hverrar annar. Endurnýja þarf umsóknina við lok hverrar annar. Náms- og ferðastyrkur framhaldsskólanema eru frá 1. janúar 2026 - kr. 70.000 fyrir hverja önn.