Fara í efni

Fjallskilaboð í Kjósarhreppi 2019

Deila frétt:
Kjósarrétt
Kjósarrétt

Fjallskil til lögrétta í Kjósarhreppi á þessu hausti verða á eftirtöldum  dögum í Kjósarrétt.

  1. rétt verður sunnudaginn  22. september kl. 15,00
  2. rétt verður sunnudaginn  13. október kl. 15,00

Samkvæmt 10. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr.733/2012  eiga allir  sem jörð hafa til ábúðar eða umráða, og allir sem sauðfé eiga eða hafa undir höndum eru fjallskilaskyldir samkvæmt fyrirmælum sveitarstjórna eða fjallskilanefnda. Hver maður er fjallskilaskyldur í því sveitarfélagi þar sem hann notar upprekstrarland fyrir fé sitt eða á land. Til leita í hverju upprekstrarlandi ber einkum að skipa þá er það nýta.

Helgi Guðbrandsson, Hækingsdal sér um smölun á landi Stóra-Botns, sunnan varnargirðingar.

Réttarstjóri í Kjósarrétt verður Sigurður Ásgeirsson, Hrosshóli.

Marklýsingarmenn í Kjósarrétt verða Hreiðar Grímsson Grímsstöðum og Dóra S. Gunnarsdóttir Hækingsdal.

Í útréttir fara eftirtaldir:

  1. Þingvallarétt  Helgi Guðbrandsson
  2. Þingvallarétt  Hreiðar Grímsson

 

Hreppsnefnd Kjósarhrepps