Fjallskilaboð í Kjósarhreppi 2020, réttað 13. september kl. 15
Fjallskil til lögrétta í Kjósarhreppi á þessu hausti
verða á eftirtöldum dögum í Kjósarrétt:
1. rétt verður sunnudaginn 13. september kl. 15:00
2. rétt verður sunnudaginn 27. september kl. 15:00
Samkvæmt 10. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr.775/2020 segir:
"Allir, sem jörð hafa til ábúðar eða umráða, og allir sem sauðfé eiga eða hafa undir höndum eru fjallskilaskyldir samkvæmt fyrirmælum sveitarstjórna eða fjallskilanefnda. Hver maður er fjallskilaskyldur í því sveitarfélagi þar sem hann notar upprekstrarland fyrir fé sitt eða á land. Til leita í hverju upprekstrarlandi ber einkum að skipa þá er það nýta."
Samkvæmt 11. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr.775/2020 segir:
"Aðalhaustleitir skulu vera tvennar. Þá skal smala allt land þar sem fénaður hefur gengið á sumarbeit, sem mest á sama tíma. Sérstaklega skal þess gætt að göngur fari fram samtímis á samliggjandi leitarsvæðum svo að eigi verði misgöngur. Skulu leitarstjórar hafa samráð um þá tilhögun sem best er talin henta til að tryggja samræmingu við smölun."
Sjá nánar: Fjallskilasamþykkt fyrir Landnám Ingólfs Arnarsonar nr.775/2020
Helgi Guðbrandsson, Hækingsdal sér um smölun á landi Stóra-Botns, sunnan varnargirðingar.
Réttarstjóri í Kjósarrétt verður Sigurður Ásgeirsson, Hrosshóli.
Marklýsingarmenn í Kjósarrétt verða Hreiðar Grímsson, Grímsstöðum og Dóra Sigrún Gunnarsdóttir, Hækingsdal.
Í útréttir fara eftirtaldir:
1. Þingvallarétt Helgi Guðbrandsson, Hækingsdal
2. Þingvallarétt Hreiðar Grímsson, Grímsstöðum
Hreppsnefnd Kjósarhrepps