Fara í efni

Folaldasýning Adams

Deila frétt:

Hestamannafélagið Adam í Kjós hefur ákveðið að halda árlega folaldasýningu sína laugardaginn 23.  apríl 2022 og hefst hún stundvíslega kl.  13:00.   Það fer hver að verða síðastur til að halda sýninguna því folöld fædd 2021 hætta að vera folöld þann 1.maí næstkomandi.  Seinkun sýningarinnar á sér ýmsar ástæður en benda má á umgangspestir og faraldra, erfiða vetrarfærð o.fl.   Folaldasýningin verður haldin í Miðdal í Kjós en þar ráða húsum hrossaræktendurnir Svanborg Anna Magnúsdóttir og Guðmundur Davíðsson.

„Landskunnir“ dómarar dæma um gæði folalda og keppt verður í tveimur flokkum, merfolöld og hestfolöld.  Verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sæti í hvorum flokki en jafnframt verður afhentur farandbikar fyrir  glæsilegasta folald sýningarinnar.  Aðeins folöld sem hafa verið ræktuð af félaga  í hestamannafélaginu Adam og/eða eru í eigu félagsmanns eru gjaldgeng til verðlauna á sýningunni.  Á félagssvæði hestamannafélagsins eru folöld ekki rökuð á þessum árstíma og er því skorað á félagsmenn að mæta ekki með rökuð folöld á sýninguna.  Aðeins órökuð folöld eru gjaldgeng til verðlauna á sýningunni.

Við dómstörfin munu dómurum vera ókunnugt um foreldra og eigendur eða ræktendur þeirra folalda sem sýnd verða en allt verður upplýst þegar úrslit liggja fyrir.

Félagsmönnum í hestamannafélaginu Adam stendur jafnframt til boða að láta byggingardæma ungfola og/eða unghryssur á sýningunni.  Byggingardómur, sem gerður verður af kunnum kynbótadómara, verður til upplýsingar fyrir eiganda en ekki til opinberrar skráningar.

Skráningagjald fyrir hvert folald er kr. 2.500,- og þarf að greiða skráningagjaldið með peningum til gjaldkera Adams við upphaf sýningarinnar.  Gjald fyrir byggingadóm er kr. 2.000 og þar það að greiðast með sama hætti og skráningargjald fyrir folöld.  Tilkynning um þátttöku þarf að berast fyrir kl. 24:00 að kvöldi fimmtudagsins 17. mars 2022 en í tilkynningunni þarf að upplýsa nafn folalds, lit, nafn móður og nafn föður.   Tilkynningu um þátttöku skal senda með tölvupósti í middalur@emax.is og/eða í flekkudalur@gmail.com.

Boðið verður uppá léttar veitingar á staðnum.  Myndin er af folaldi undan Óskari frá Flekkudal, sem staðsettur er í Danmörku.