Fara í efni

Folaldasýning Adams

Deila frétt:

 

Hestamannafélagið Adam í Kjós heldur árlega folaldasýningu sína í „Boganum“ við Þúfu í Kjós þann 9.  janúar næstkomandi og hefst hún stundvíslega kl.  12:00.   Til stóð að halda folaldasýninguna þann 5. desember síðastliðinn en þá þurfti að fresta viðburðinum vegna slæms veðurs.   „Landskunnir“ dómarar dæma um gæði folalda og verður keppt í tveimur flokkum, merfolöld og hestfolöld.   Verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sæti í hvorum flokki en jafnframt verður afhentur farandbikar fyrir  glæsilegasta folald sýningarinnar og verður það að vera í eigu Adamsfélaga.   Allir eru boðnir velkomnir til þátttöku, Adamsfélagar sem og aðrir hrossaræktendur.   

 

Skráningagjald fyrir hvert folald er kr. 1.500,- og þarf að greiða skráningagjaldið með peningum til gjaldkera Adams við upphaf sýningarinnar.  Tilkynning um þátttöku þarf að berast fyrir kl. 24:00 að kvöldi miðvikudagsins 6. janúar 2016 en í tilkynningunni þarf að upplýsa nafn folalds, lit, nafn móður og nafn föður.   Tilkynningu um þátttöku skal senda með tölvupósti í odinn@fulltingi.isog/eða flekkudalur@gmail.com.

 

Boðið verður uppá léttar veitingar á staðnum á hóflegu verði.  Þar sem ekki er tekið við greiðslukortum á sýningunni verða veitingar aðeins greiddar með peningum.