Fara í efni

Folaldasýning Adams

Deila frétt:

Hestamannafélagið Adam í Kjós hefur ákveðið að halda árlega folaldasýningu sína laugardaginn 28.  janúar 2023 og hefst hún stundvíslega kl.  13:00.  Folaldasýningin verður haldin í Miðdal í Kjós en þar ráða húsum hrossaræktendurnir Svanborg Anna Magnúsdóttir og Guðmundur Davíðsson og fjölskylda.

„Landskunnir“ dómarar dæma um gæði folalda og keppt verður í tveimur flokkum, merfolöld og hestfolöld.   Verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sæti í hvorum flokki en jafnframt verður afhentur farandbikar fyrir  glæsilegasta folald sýningarinnar.   Aðeins folöld sem hafa verið ræktuð af félaga  í hestamannafélaginu Adam og/eða eru í eigu félagsmanns eru gjaldgeng til verðlauna á sýningunni. 

Á félagssvæði hestamannafélagsins eru folöld ekki rökuð á þessum árstíma og er því skorað á félagsmenn að mæta ekki með rökuð folöld á sýninguna.  Aðeins órökuð folöld verða verðlaunuð á sýningunni.

Við dómstörfin munu dómurum vera ókunnugt um foreldra og eigendur eða ræktendur þeirra folalda sem sýnd verða en allt verður upplýst þegar úrslit liggja fyrir.

Skráningagjald fyrir hvert folald er kr. 3.000,- og þarf að greiða skráningagjaldið með peningum til gjaldkera Adams við upphaf sýningarinnar.  Tilkynning um þátttöku þarf að berast fyrir kl. 24:00 að kvöldi fimmtudagsins 26. janúar 2023 en í tilkynningunni þarf að upplýsa nafn folalds, lit, nafn móður og nafn föður.   Tilkynningu um þátttöku skal senda með tölvupósti í middalur@emax.is og/eða í flekkudalur@gmail.com.

Boðið verður uppá léttar veitingar á staðnum.