Fara í efni

Frestað! Folaldasýningu Adams frestað fram á sunnudag 12.jan kl. 13

Deila frétt:
Myndin er af Skugga-Sveini frá Þjóðólfshaga sem sigraði í flokki hestfolalda á folaldasýningu Adams …
Myndin er af Skugga-Sveini frá Þjóðólfshaga sem sigraði í flokki hestfolalda á folaldasýningu Adams 2011.
Skugga-Sveinn er nú hátt dæmdur 1. verðlauna graðhestur.

Frestað vegna veðurs til sunnudagsins 12.janúar, hefst stundvíslega kl. 13:00

Hestamannafélagið Adam í Kjós stefndi að halda sína árlegu folaldasýningu sína þann 11.  janúar næstkomandi, en vegna veðurs hefur verið ákveðið að fresta henni til 12.jan og hefst hún stundvíslega kl.  13.   Folaldasýningin verður haldin í Miðdal í Kjós en þar ráða húsum hrossaræktendurnir Svanborg Anna Magnúsdóttir og Guðmundur Davíðsson.

„Landskunnir“ dómarar dæma um gæði folalda og keppt verður í tveimur flokkum, merfolöld og hestfolöld.   Verðlaunað verður fyrir fyrstu þrjú sæti í hvorum flokki en jafnframt verður afhentur farandbikar fyrir  glæsilegasta folald sýningarinnar.   Aðeins folöld sem hafa verið ræktuð af félaga  í hestamannafélaginu Adam og/eða eru í eigu félagsmanns eru gjaldgeng til verðlauna á sýningunni.  Á félagssvæði hestamannafélagsins eru folöld ekki rökuð á þessum árstíma og er því skorað á félagsmenn að mæta ekki með rökuð folöld á sýninguna.  Aðeins órökuð folöld eru gjaldgeng til verðlauna á sýningunni.

Við dómstörfin munu dómurum vera ókunnugt um foreldra og eigendur eða ræktendur þeirra folalda sem sýnd verða en allt verður upplýst þegar úrslit liggja fyrir.

Félagsmönnum í hestamannafélaginu Adam stendur jafnframt til boða að láta byggingardæma ungfola og/eða unghryssur á sýningunni.  Byggingardómur, sem gerður verður af kunnum kynbótadómara, verður til upplýsingar fyrir eiganda en ekki til opinberrar skráningar.

Skráningagjald fyrir hvert folald er kr. 2.000,- og þarf að greiða skráningagjaldið með peningum til gjaldkera Adams við upphaf sýningarinnar.  Gjald fyrir byggingadóm er kr. 1.500 og þar það að greiðast með sama hætti og skráningargjald fyrir folöld.  Tilkynning um þátttöku þarf að berast fyrir kl. 24:00 að kvöldi fimmtudagsins 9. janúar 2020 en í tilkynningunni þarf að upplýsa nafn folalds, lit, nafn móður og nafn föður.   Tilkynningu um þátttöku skal senda með tölvupósti í middalur@emax.is og/eða í flekkudalur@gmail.com.

Boðið verður uppá léttar veitingar á staðnum.  Myndin er af Skugga-Sveini frá Þjóðólfshaga sem sigraði í flokki hestfolalda á folaldasýningu Adams 2011.  Skugga-Sveinn er nú hátt dæmdur 1. verðlauna graðhestur.