Frá félagsstarfi aldraðra í Mosfellsbæ
Síðsumarferð verður farin föstudaginn 16.september og liggur leiðin til Krísuvíkur. Ekið um Sveifluháls meðfram Kleifarvatni , komið m.a. til Herdísarvíkur og Strandakirkju og síðan farið sem leið liggur til Hveragerðis. Eftir stutt stopp þar verður ekið til Stokkseyrar og farið á veitingastaðinn Við fjöruborðið, en þar er fyrirhugað að snæða humarsúpu að hætti hússins. Lagt verður af stað frá Hlaðhömrum kl. 13.00 Skráning á skrifstofu félagsstarfsins kl. 13.00-16.00 sími 5868014 og 6920814.
Verð: þ.e. akstur kr. 2.500 sem greiðist við brottför og síðan gr. hver fyrir sig á matstaðnum.
Leikfimi - Nú gerum við það sem við getum til þess að sporna við hrörnum líkamans og stundum góða leikfimi með styrktar- og teygjuæfingum undir leiðsögn sjúkraþjálfara.
Leikfimin byrjar 22 sept. kl. 10.45 á Eirhömrum. Léttar æfingar verða fyrsta hálftímann, en síðan taka við erfiðari æfingar fyrir þá getumeiri. Ath: Ef næg þátttaka næst, þá verður leikfimi tvisvar í viku. Verð: 10 tímar kr. 1.920 einu sinni í viku og 20 tímar þ.e. tvisvar í viku kr. 3.840.
Skráning fer fram á skrifstofu félagsstarfsins kl. 13.00-16.00, og er jafnframt tekið á móti greiðslu við skráningu
Vorboðinn! Kóræfingar byrja mánudaginn 12. sept. kl. 13.15,
í Safnaðarheimilinu Þverholti 3. Í lok æfingar verður aðalfundur kórsins.
Handverksstofan á Eirhömrum er opin alla virka daga kl. 13.00-16.00. Vikuna 19. til 23. sept. verður farið í kortagerð.
Tréskurðarnámskeið byrjar fimmtudaginn 15. sept. kl. 12.30.