Frumbygging á meðal sumarhúsa
02.11.2007
Deila frétt:
![]() |
| Árnes |
Það var stórkaupmaður í Reykjavík að nafni Georg Copland sem lét byggja húsið í Káraneslandi. Kopland átti nokkrar jarðir í Kjós í upphafi 20. aldar. Laxárnes, Neðri-Háls og líklega Hvamm en ritari hefur ekki staðfesta heimild um það. Áform voru uppi um að fara í stórtæka búvöruframleiðslu. Komið var á áveitu úr Bugðu inná Laxánesflóann en áveita engjar tíðkaðist á þessum tíma. Með áveitu á slægjulönd vannst, að næringarríkt flóðavatn gerði landið frjósamara og þar með uppskerumeira, hlífði því fyrir vetrarhörkum og gerði það sléttara.
Kopland var gjaldþrota um1920 og tapaði þá öllu sínu hér í sveit.
