Fara í efni

Fundur um framtíð Reynivalla sem prestsseturs og aðalsafnaðarfundur verður 28. apríl í Ásgarði

Deila frétt:


Þriðjudaginn 28. apríl kl. 20, verður almennur umræðufundur í Ásgarði  um safnaðarstarf í Reynivallasókn og framtíð prestsseturs að Reynivöllum.
Sr. Gunnar Kristjánsson, núverandi prestur mun láta af embætti í vor og er á förum úr sveitinni eftir tæp 40 ár.


Í kjölfarið verður aðalsafnaðarfundur Reynivallasóknar haldinn á sama stað

(í Ásgarði) fyrir árið 2015.
Dagskrá, venjuleg aðalfundarstörf.
Hvetjum alla Kjósverja að mæta og  taka þátt í umræðunni.
Sóknarnefnd

 

Áður auglýstum aðalsafnaðarfundi sem vera átti þann 17. apríl er því frestað til 28. apríl