Fara í efni

Fundur um málefni UMF Drengs.

Deila frétt:

Fundur var haldinn hér í Ásgarði sl. miðvikudagskvöld vegna málefna UMF Drengs. Spurt  var, á að leggja félagið formlega niður eða blása í lúðra og vekja það? Ákveðið var að blása í lúðra og halda aðalfund  Drengsins, föstudagskvöldið 30. október kl.  20:00 - í Félagsgarði. Aðalfundurinn verður síðan boðaður formlega með löglegum fyrirvara. Rætt var um á fundinum að starfsemin þyrfti  ekki endilega að umfangsmikil í byrjun, nóg væri að setja stefnu á að fá þjálfara  í líkamsrækt og glímu.

 

Útgáfuhátíð  vegna útkomu bókarinnar „Ungmennafélagið Drengur 100 ára“ verður síðan eftir aðalfundinn.

 

Líkamsrækt. Alfa R Jóhannsdóttir líkamsræktarfrömuður í Mosfellsbæ er tilbúin að koma hingað upp í Kjós og þjálfa áhugasama, einu sinni,  tvisvar eða oftar í viku, fer  eftir áhuga.  Þeir sem ætla að vera með  mæti í Ásgarð, þriðjudagskvöldið  13. október kl 20:00, aðeins til skrafs. Nánari upplýsingar veitir Guðný í s: 5667100 eða  gsm: 8997052.