Fara í efni

Fyrsta Íslandsmeistaramót í heyrúlluskreytingum.

Deila frétt:

Á Kátt í Kjós verður á Laxárnestúninu neðan við Félagsgarð, milli kl:12: og 16:30, keppni í að skreyta plastaðar heyrúllur með frjálsri aðferð. Þó má ekki gata rúllurnar. Verslunin Poulsen leggur til málingu á spreybrúsum en verslunin er með fjölbreytt úrval af landbúnaðarvörum og er uppáhaldsverslun hvers bónda.

Á myndini hér til hliðar má sjá óskreyttar heyrúllur í fallegu umhverfi. Það er mat manna að þegar verði búið að skreyta þessar rúllur af  færum listamönnum sem öðrum, verði það gjörningur sem á eftir að vekja heimsathygli

Hver þátttakandi fær eina rúllu til að skreyta að eigin vilja. Þátttakendur fá málingarsprey en geta líka komið með sína eigin liti eða annað efni til skreytingar Skráning fer fram á staðnum þannig að þátttakendur skrá nöfn sín á þátttökublað og fá úthlutað númeri sem þurfa að auðkenna viðkomandi heyrúllu. Best skreyttu rúllurnar verða síðan valdar

kl: 17:00 og nöfn vinningshafa birt á kjos.is. Dómarar verða Þorlákur Morthens-Tolli, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir og Óskar Páll Sveinsson.

 

Umsjón Jóna og Kristín í Miðbúð email jonathors@simnet.is