Gróðursetning við Ásgarð.
Þann 29. júní verða liðin 35 ár frá því Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands, fyrst kvenna til að verða þjóðkjörin forseti, og 100 ár frá því konur hér á landi fengu kosningarétt. Af þessu tilefni hafa á fjórða tug félagasamtaka og stofnana, þar á meðal Skógræktarfélag Íslands, tekið höndum saman og efna til hátíðardagskrár sunnudaginn 28. júní.
Skógrækt, landgræðsla og náttúruvernd hafa verið Vigdísi afar hugleikin og hefur hún haldið þeim málefnum á lofti á opinberum vettvangi. Eitt besta dæmið þar að lútandi er að snemma í forsetatíð sinni tók hún upp þann sið að gróðursetja þrjú tré á þeim stöðum sem hún heimsótti – eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir drengi og eitt fyrir komandi kynslóðir. Því þótti upplagt að skógræktar- og sveitarfélögin myndu marka þessi tímamót með gróðursetningu og fylgja fordæmi Vigdísar um trén þrjú.

Kjósarhreppur og Skógræktarfélag Kjósarhrepps munu að því tilefni standa saman að gróðursetningu þriggja birkitrjáa af yrkinu Emblu við Ásgarð, laugardaginn 27. Júní kl 11:00.
Tveir unglingar úr sveitarfélaginu munu gróðursetja trén , eitt fyrir stúlkur, eitt fyrir drengi og eitt fyrir komandi kynslóðir. Heitt verður á könnunni og allir hjartanlega velkomnir.