Heilsukvöld í Ásgarði - miðvikudaginn 25. mars

Miðvikudagskvöldið 25. mars, kl. 20-22, verður bókasafnskvöld í Ásgarði með heilsuívafi. Þessu kvöldi var frestað síðast út af veðri, en nú er veðurspáin mun skárri.
Það veitir ekki af að byggja sig upp eftir flensuna og umhleypingarnar sem herjað hafa á okkur nær látlaust.
Auk þess að þjappa sveitinni saman eftir ótímabært fráfall okkar yndislegu bókverju, Önnu Bjargar á Valdastöðum. Blessuð sé minning hennar.
Solla á Gló, hinn mikli Kjósarvinur, kemur og fræðir okkur um almennt hollt mataræði án þess að umturna öllu. Kennir okkur að gera grænan djús og grænan sjeik ásamt því að gefa okkur góðar uppskriftir og smakk.
Flýtum vorinu, hressum okkur við og hugsum um heilsuna.
Sjáumst í Ásgarði miðvikudagskvöldið 25. mars nk., kl. 20.
Þar næsta bókasafnskvöld, og jafnframt það síðasta á þessum vetri,
verður miðvikudaginn 15. apríl. Minnum alla á að skila inn bókunum eftir veturinn.