Fara í efni

3 tunnur fyrir heimili í Kjós

Deila frétt:

Kjósarhreppur tók ákvörðun um að bæta við 3ju tunnunni fyrir heimili, sem er ætluð undir umbúðaplast, enda plast orðið stór hluti af umfangi heimilissorps og nauðsynlegt að flokka sér.
Finna má ítarlegar leiðbeiningar um flokkun: https://www.kjos.is/is/thjonusta/umhverfismal-1/sorphirda

Tunnurnar eru komnar og verða keyrðar út á næstu dögum. Svartar tunnur með grænu loki. 

Vissir þú að....
  • Hægt er að endurvinna pizzukassa, svo lengi sem búið er að hreinsa alla matvöru úr honum
  • Hægt er að endurvinna venjulegan pappakassa allt að 7 sinnum
  • Það tekur að meðaltali um 450 ár fyrir plastumbúðir að eyðast upp í náttúrunni
  • Álpappír er búinn til úr málmi og má fara í endurvinnslutunnuna
  • Álpappír, málmdósir, lok af glerkrukku, dagblöð, bæklingar, pappi, plastumbúðir og plastfilma eru allt dæmi um efni sem eru endurvinnanleg
  • Að lífplast flokkast með lífrænum úrgangi en ekki plasti
5 leiðir fyrir heimili til að skilja ekkert eftir:
  • Mikilvægt er að hreinsa matvöru pizzakassa sem við ætlum að koma í endurvinnslu : einn pizzakassi sem ennþá inniheldur matarafgang getur opnast þegar bíllinn losar tunnuna og eyðilagt allan pappann sem búið er að safna
  • Skolum allt plast áður en við komum því til endurvinnslu, óhreint efni er ekki eftirsótt til endurvinnslu
  • Setjum öll föt sem við erum hætt að nota í gám frá Rauða krossinum
  • Söfnum matarleifum sérstaklega og búum til Moltu, í garðinum heima
  • Lágmörkum notkun á einnota vörum, svo sem plastglösum, plaströrum og hnífapörum úr plasti