Fara í efni

Heitavatnslaust í hluta Kjósarinnar mánudaginn 15. september nk.

Deila frétt:

Uppfært:  Viðgerð lauk á hádegi þann 15. september. Þökkum fyrir þolinmæðina og gott samstarf.

Vegna viðgerðar verður heitavatnslaust í Eilífsdal , Hlíð , Hömrum, Eyri , Miðdal og Kiðafelli mánudaginn 15. september frá kl 10:00 - 14:00. Sjá nánar á korti.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Kjósarveitur ehf