Heitu vatni hleypt á kerfið í DAG kl. 11:00
09.09.2026
Deila frétt:
Framkvæmdir við stofnkerfi hitaveitunnar hafa gengið afar vel og er að ljúka. Byrjað verður að hleypa heitu vatni á kerfið kl 11:00 í DAG miðvikudag 9 september.
Það mun taka nokkurn tíma að byggja upp þrýsting í hitaveitukerfinu en reiknað er með að fullur þrýstingur verði kominn á kerfið síðar í dag.
Minnum á þessar ráðleggingar:
- Skrúfið fyrir alla krana: Fólki er vinsamlegast bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana á tímabilinu til að draga úr hættu á slysum eða vatnstjóni þegar vatnið kemst á að nýju.
- Hugið að innanhússkerfum: Húseigendur eru hvattir til að fylgjast með og huga að eigin hitakerfum eftir að vatnið kemst á og lofta út af ofnum ef loftslög myndast í kerfinu.
- Öryggi við ræsingu: Þegar vatni er hleypt á kerfið að nýju er það gert hægt og rólega til að vernda lagnir og því getur tekið nokkurn tíma fyrir fullan þrýsting og hita að nást á öllum stöðum.
Kjósarveitur