Fara í efni

Helgihald í Reynivallakirkju

Deila frétt:

Pálmasunnudagur.
Messa kl.14. Sveinn Arnar Sæmundsson leikur á orgel og Kirkjukórinn leiðir sálmasöng og messusvör. Sr. Arna Grétarsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Tvær stúlkur verða fermdar í messunni. Verið hjartanlega velkomin til kirkju.

Föstudagurinn langi.
Krossganga frá Fossá yfir Reynivallaháls að Reynivallakirkju kl.9 . Göngustjórar sr. Arna Gétarsdóttir og Rúnar Vilhjálmsson. Klukkan .11.30 - verður Píslarsagan lesin í Reynivallakirkju.

Páskadagur.
Hátíðarmessa kl.14. Sveinn Arnar Sæmundsson leikur á orgel og Kirkjukórinn leiðir sálmasöng og messusvör. Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Verið hjartanlega velkomin til kirkju.

Sóknarnefnd og sóknarprestar.