Fara í efni

Hesta- og útivistarmessa

Deila frétt:

Útivistar- og hestamessa.

Árleg hestamessa verður í Reynivallakirkju um verslunarmannahelgina, sunnudaginn 4. ágúst kl. 14.

María Gunnarsdóttir guðfræðingur, verkefnastjóri á biskupsstofu
og hestakona með meiru mun predika í messunni.  
Kirkjukór Reynivallaprestakalls syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar organista.
Sr. Arna Grétarsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari.

Pallakaffi, kleinur og söngur við prestssetrið eftir messuna.

 Hestafólk er hvatt til þess að ríða til messu.

 Verið hjartanlega velkomin.