Hrútasýning og lambaskoðun 2015
01.10.2015
Deila frétt:
![]() |
| Flottasti hrúturinn 2014: Myspill frá Morastöðum í Kjós |
Sameiginleg hrútasýning fyrir Mosfellsbæ, Kjalarnes og Kjós verður haldin að Kiðafelli í Kjós, mánudaginn 12 . okt. og hefst klukkan 13.00.
Þar gefst bændum kostur á að fá stiguð og ómmæld lömb og veturgamla hrúta.
Þeir sem hafa hug á að nýta sér þessa þjónustu RML eru beðnir að hafa samband við Ólöfu Ósk í síma 849-8254 eða í tölvupósti olofosk@lbhi.is
Um kl 16:00, fer fram verðlaunaafhending fyrir flottustu hrúta sýningarinnar, allir eru velkomnir til að vera viðstaddir og þiggja kaffiveitingar.
Líkt og fyrri ár verður verðlaunað sérstaklega fyrir stigahæsta mislita/kollótta lambhrútinn.
Sýningin er jafnframt vettvangur til að verða sér út um gripi til kynbóta.
Sauðfjárræktarfélagið Kjós
![]() |
![]() |
|
| Vel-rúinn forystuhrútur | Móði frá Miðdal tekur lífinu með ró | |


