Húsmæðraorlof 2026 Gullbringu- og Kjósarssýslu
Orlofsnefnd húsmæðra í Gullbringu- og Kjósarsýslu fyrir sveitarfélögin Garðabæ, Kjósarhrepp, Mosfellsbæ og Seltjarnarnes auglýsir hér með orlofsferðir fyrir árið 2026.
30. október – 3. nóvember 2026 5 daga ferð / 4 nætur Íslensk fararstjórn
Hefur þú komið til Edinborgar? Ef ekki þá er um að gera að skella sér í flottu haustferðina okkar til Edinborgar því að enn eru laus pláss. Er ekki dásamlegt að geta lokið við að kaupa jólagjafir áður en allt hækkar og notið aðventunnar með vinum og fjölskyldu í desember. Skotganga sér um leiðsögn í þessari ferð og fara þau með okkur í skoðunarferð um borgina og dagsferð um hálönd Skotlands sem endar með Afternoon tea.
Bókaðu þig núna á vefnum www.orlofgk.is svo að þú missir ekki af þessari frábæru ferð með okkur. Verð á mann sem er niðurgreitt í tvíbýli er kr. 186.000 aukagjald fyrir einbýli kr. 79.000.
Rétt til að sækja um orlofsferð hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Upplýsingar um ferðirnar og skráning er á vefsíðunni www.orlofgk.is einnig er hægt að senda tölvupóst á orlofgk@gmail.com