 |
| Ásbjörn |
Verið er að leggja lokahönd á byggingu nokkra íbúðarhúsa í Kjósinni um þessar mundir. Áætlað er að flutt verði inn í þau með vorinu. Við Bugðuós er Óskar Páll og Alma að byggja,Valdemar Flyering á Sillu Einar og Eva Mjöll á Traðarholti og Bubbi og Hrafnhildur eru að endurbyggja Fjallkofann. Diddi Morthens hafði átt kofann um langt skeið og átti þar lögheimili. Á meðfylgjandi mynd má sjá Ásbjörn Morthens við hús sitt, sem verið er að leggja lokahönd á en Ásbjörn hefur getið sér gott orð fyrir lagasmíð og söng.