Fara í efni

Ístölt á Eyjatjörn í Kjós.

Deila frétt:
Aðsent efni

Adam frá Meðalfelli
Hið nýja og örsmáa, en umfram allt geysiöfluga hestamannafélag; Adam í Kjós, stendur fyrir ístölti og gleði á Eyjatjörn í Kjós , laugardaginn 1.  mars. Kl. 13.  Mótið er opið.

Keppt verður í eftirtöldum flokkum:

Karlaflokk

Kvennaflokk

Húnaflokk – Ætlaður þeim sem aldrei hafa keppt á ís; karlar, konur, og börn.

 

Sá Adamsfélagi sem nær bestum árangri í hverjum flokk er verðlaunaður sérstaklega.  Hægt er að skrá sig í Adam á staðnum. Hvetjum Kjósverja jafnt sem annað skemmtilegt fólk að mæta.

 

Spáin er glæsileg – sól og sæla. Glæsilegt reiðfæri um alla sveitina.

Hvernig væri að skella sér í Kjósina og leika sér aðeins?

Skráning kostar kr. 1000 – seðlar eingöngu- nema fyrir börn 12 ára og yngri er frítt. Hægt er að skrá með því að senda SMS í  895-7745, 865-1944 eða með tölvupósti á: bjossi@icelandic-horses.is  Nóg að senda inn nafn og flokk. Annað skráð á staðnum.

Eyjatjörnin er rétt innan við Meðalfellsvatn- svona um 2 km lengra.

Stjórn Adams

Hestamannafélagið Adam óskar eftir áhugasömu fólki til að aðstoða við ístöltmótið á Eyjatjörn á laugardaginn. t.d. vantar ritara, þul á gjallarhornið ofl.