Fara í efni

Kaffisala Vindáshlíðar sunnudaginn 7. júní

Deila frétt:

 

Hin árlega kaffisala Vindáshlíðar verður haldin í Vindáshlíð í Kjós,

sunnudaginn 7. júní kl. 14-17.

Að venju verður boðið upp á stórkostlegt kaffihlaðborð.

 

Verð kr. 1500 fyrir 14 ára og eldri og kr. 750 fyrir 6-13 ára.

 

 

Kaffisalan hefst á messu kl. 14 í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð og mun sr. Guðmundur Karl messa.

Íþróttahúsið verður opið, hægt er að skoða staðinn að utan sem innan, spila jafnvel brennóleik eða skoða göngustíga og rjóður í grenndinni.

 

Takið sunnudaginn 7. júní frá fyrir skemmtilegan sunnudagsbíltúr!
Allir eru hjartanlega velkomnir.