Fara í efni

Kátt í Kjós 18. júlí 2009

Deila frétt:

Kátt í Kjós verður laugardaginn 18. júlí. Smátt og smátt er dagurinn að teiknast upp. Hólmfríður Gísladóttir fyrrverandi skólastjóri verður í Ásgarði en hún hefur undir höndum mikið safn mynda frá starfsárum sínum í Ásgarði. Gamlir munir verða teknir niður af háalofti og hafðir til sýnis. Þá verður Kjósarkvikmyndin frá 1952 sýnd. Ný upplýsingarspjöld sem setja á upp við áningastaði verða einnig frumsýnd og kvenfélagið verður með veitingasölu. Allt stefnir því í að í Ásgarði verði notaleg menningar-og skólatengd samverustund.

Þátttakendur á markaðinum eru í óða önn að skrá sig hjá Sibbu. Heimafólk er sérstaklega hvatt til að skrá sig sem fyrst.