Fara í efni

Kátt í Kjós, Hvammsvík

Deila frétt:

Á útivistarsvæðinu í Hvammsvík er nú rekin blómleg ferðaþjónusta og þar er að finna fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.  Þar er m.a. í boði silungsveiði, golfvöllur, kajakferðir, hestar, grillveislur og margt fleira.    

Auk þess að bjóða upp á stuttar kajakferðir um Hvalfjörðinn, er boðið upp á kajakferðir víða um land sem og kajaknámskeið. Þá er einnig rekinn í Hvammsvík innflutningur á kajökum og tengdum búnaði. Þær vörur, sem í boði eru, fást allar á staðnum og hægt er að prufa báta.

Ferðaþjónustuna rekur Pétur Blöndal Gísalaon og hefur gert um árabil. Náttúrufegurð er mikil í Hvammsvík líkt og annars staðar við Hvalfjörð Mikið er um að starfsmannafélög dvelji helgarlangt og njóti útiveru og þeirrar þjónustu sem er í boði.

 

Þann 19. júlí  bíðst frítt í golf, á Opnum degi í Kjós, teymt verður undir börnum og veiðileyfi verða á tilboðsverði og ýmis annar glaðningur  verður í boði.

 

Opið frá kl. 13-17,  s: 566 7023,  info@hvammsvik.is