Fara í efni

Kátt í Kjós, Reynivellir

Deila frétt:

Á Reynivöllum hefur verið kirkja frá landnámstíð eftir því sem best verður séð. Kirkjan sem þar er nú var reist árið 1859. Staðurinn býr yfir mikilli sögu enda alla tíð í þjóðbraut. Þar var þinghús sveitarinnar og fyrsti barnaskólinn, einnig var þar stundað fyrsta fiskeldi á Íslandi, 1884-6.           

Kirkjan sem nú stendur á Reynivöllum er ein elsta timburkirkja landsins. Hún var reist árið 1859 í tíð séra Gísla Jóhannessonar. Allt fram til þess tíma hafði kirkjan staðið í kirkjugarðinum ofanverðum og skammt frá hafði bærinn staðið frá ómunatíð, uns hann var færður á svipaðar slóðir og hann er nú, þó lítið eitt neðar, eftir skriðuföll sem gengu oftsinnis yfir staðinn á 17. öld. Um aldamótin 2000 var kirkjan endurbyggð að verulegu leyti, m.a. voru bekkir þá smíðaðir að nýju. Altaristafla eftir Brynjólf Þórðarson prýðir kirkjuna auk ýmissa annarra merkra gripa.

Á Reynivöllum búa þau séra Gunnar Kristjánsson prófastur og frú Anna Höskuldsdóttir

             

Sóknarpresturinn, dr. Gunnar Kristjánsson, flytur fræðsluerindi í kirkjunni, um sveitina og kirkjustaðinn kl. 17.