Fara í efni

Kjósarhreppur auglýsir skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag - Nesvegur 1, 3 og 5

Deila frétt:

Kjósarhreppur auglýsir skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 deiliskipulag - Nesvegur 1, 3 og 5

Samþykkt var í sveitarstjórn Kjósarhrepps 1. desember 2021 að auglýsa tillögu deiliskipulags Nesvegar 1, 3 og 5 í landi Flekkudals í Kjósarhreppi og að heimilt sé að falla frá gerð lýsingar fyrir deiliskipulagsverkefnið, enda liggi allar meginforsendur fyrir í aðalskipulagi, sbr. 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið er um 1,4 ha að stærð, með aðkomu frá Nesvegi og tekur til þriggja frístundalóða sem skipt var út úr landi Flekkudals (L126038) í Kjósarhreppi. Svæðið er sunnan Flekkudalsvegar nr. 4834 og vestan Nesvegar. Deiliskipulagið felur m.a. í sér að afmarka og skilgreina byggingareiti fyrir lóðirnar; Flekkudalur 1, 3 og 5.

Í Aðalskipulagi Kjósarhrepps 2017-2029 er svæðið skilgreint á landbúnaðarlandi í flokki I. Í stefnu sveitarfélagsins í aðalskipulagi segir að svæði sem flokkast sem gott landbúnaðarland (flokkur I og II) verði ekki tekið til annarrar landnýtingar sem takmarki matvælaframleiðslu til framtíðar. Á landbúnaðarlandi er heimilt að reisa stök frístundarhús í nágrenni núverandi byggðar og/eða veitukerfa, til að nýta sem best núverandi þjónustukerfi.

Nú þegar er búið að leggja aðkomuveg sem nýtist svæðinu og byrjað er að reisa frístundahús austan vegarins á deiliskipulögðu svæði. Svæðið er því í jaðri þegar raskaðs lands, þar sem verið er að nýta núverandi innviði og er því ekki verið að raska samfelldu landbúnaðarlandi.

Deiliskipulagstillagan verður til sýnis í anddyri hreppsskrifstofu  Kjósarhrepps í Ásgarði frá og með föstudeginum 10. desember 2021 til og með 24. janúar 2022.  Tillögurnar verða jafnframt birtar á heimasíðu Kjósarhrepps, kjos.is.    Athugasemdir eða ábendingar vegna deiliskipulagstillögunnar skulu vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 24. janúar 2022.  Póstlagðar athugasemdir berist á skrifstofu Kjósarhrepps að Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ, eða með tölvupósti á netfangið skipulag@kjos.is

Kjósarhreppur  7.12. 2021
Skipulagsfulltrúi Kjósarhrepps