Fara í efni

Kjósarveitur minna á lokun hitaveitunnar á morgun og SMS

Deila frétt:

SMS tilkynningar um lokun hitaveitunnar voru sendar út á notendur Kjósarveitna í morgun. Ef SMS hefur ekki borist þá vinsamlegast sendið tengiliðaupplýsingar með GSM símanúmeri á netfangið kjosarveitur@kjos.is

Við minnum á að heitavatnslaust verður á veitusvæði Kjósarveitna frá morgundeginum 8. september kl. 10:00 til fimmtudagsins 10. september kl. 10:00 vegna viðhaldsframkvæmda og endurbóta á stofnkerfi hitaveitunnar. Ekki ætti að þurfa að grípa til sértækra ráðstafana en ef húseigendur eru óvissir gæti verið gott að heyra í pípulagnameistara hússins.

Meðfylgjandi eru almennar ráðleggingar:

  • Skrúfið fyrir alla krana: Fólki er vinsamlegast bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana á tímabilinu til að draga úr hættu á slysum eða vatnstjóni þegar vatnið kemst á að nýju.
  • Lokið gluggum: Gætið þess að hafa glugga og útidyr lokaðar eins og kostur er til þess að húsin haldi varma sem lengst.
  • Hugið að innanhússkerfum: Húseigendur eru hvattir til að fylgjast með og huga að eigin hitakerfum eftir að vatnið kemst á og lofta út af ofnum ef loftslög myndast í kerfinu.
  • Öryggi við ræsingu: Þegar vatni er hleypt á kerfið að nýju er það gert hægt og rólega til að vernda lagnir og því getur tekið nokkurn tíma fyrir fullan þrýsting og hita að nást á öllum stöðum.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Kjósarveitur.