Fara í efni

Klébergsskóli 90 ára

Deila frétt:
Klébergsskóli 90 ára
Klébergsskóli 90 ára

Afmælishátíð verður haldin í Klébergsskóla laugardaginn 19. október 2019 kl. 13-15 en þann dag var barnaskólinn á Klébergi vígður fyrir 90 árum.

Þennan dag verður opið hús hjá okkur og margt skemmtilegt að sjá og upplifa í kennslustofum um allan skóla.
Nemendur verða leiðsögumenn foreldra sinna og annarra gesta en vikuna á undan verður sérstök afmælisþemavika með fræðslu og skemmtun.

Að sjálfsögðu verður glæsileg afmælisterta í boði fyrir alla!

Hlökkum til að sjá sem flesta

Facebook-síða afmælisins